FJÓRAR umsóknir bárust um starf sviðsstjóra fjármála og stjórnsýslu hjá Akureyrarbæ og aðrar fjórar umsóknir um starf forstöðumanns Skíðastaða í Hlíðarfjalli til eins árs. Umsækjendur um starf sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslu eru: Baldur Dýrfjörð, Benedikt Sigurðarson og Dan Jens Brynjarsson frá Akureyri og Ottó Magnússon úr Reykjavík.
Yfirmannsstöður
hjá Akureyrarbæ
Átta umsóknir um tvær stöðurFJÓRAR umsóknir bárust um starf sviðsstjóra fjármála og stjórnsýslu hjá Akureyrarbæ og aðrar fjórar umsóknir um starf forstöðumanns Skíðastaða í Hlíðarfjalli til eins árs.
Umsækjendur um starf sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslu eru: Baldur Dýrfjörð, Benedikt Sigurðarson og Dan Jens Brynjarsson frá Akureyri og Ottó Magnússon úr Reykjavík.
Ívar Sigmundsson hefur fengið ársleyfi hjá Skíðastöðum en umsækjendur um starf forstöðumanns eru: Haukur Stefánsson, Valdemar Valdemarsson, Valur Þór Hilmarsson og Þröstur Guðjónsson, allir búsettir á Akureyri.