Daði Björnsson Í örfáum orðum langar okkur að minnast föðurbróður okkar Daða Björnssonar sem nú er látinn. Daði var ókvæntur og barnlaus, og var hann okkur systrunum mjög góður frændi. Það hefði verið honum mjög á móti skapi að skrifuð hefði verið löng minningargrein um hann, en okkur langar til að þakka honum fyrir alla þá góðvild og örlæti sem hann sýndi okkur og fjölskyldum okkar. Megi góður guð geyma þig, elsku frændi, og takk fyrir allt.

Helga Þóra Ragnarsdóttir,

Birna Katrín Ragnarsdóttir.