Grímur Aðalbjörn Grímsson Mig langar með fáeinum orðum að kveðja æskuvin minn Grím Aðalbjörn Grímsson. Ótal minningarbrot koma upp í huga minn er ég hugsa til baka. Við vorum ekki gömul er við lékum okkur saman í sveitinni okkar. Yfirleitt var þetta búleikur með kökum skreyttum sóleyjum og með húsdýrum sem voru leggir, horn og kjálkar. Við fylgdumst að í barnaskólanum hjá Ólínu og síðan í Reykjaskóla þar sem við vorum í þrjá vetur. Það bar aldrei skugga á vináttu okkar og héldum við alltaf sambandi í gegnum árin. Er ég kveð þig að leiðarlokum sendi ég og fjölskylda mín okkar innilegustu samúðarkveðjur til eiginkonu, barna, móður og systkina.

Bjarney Ólafsdóttir.