YASMINE Bleeth úr Strandvörðum hefur fengið hlutverk í sjónvarpsþáttunum "Nash Bridges". Don Johnson er í aðalhlutverki í þáttunum í gervi lögreglumannsins Nash Bridges. Félagi hans í lögreglunni er leikinn af Cheech Marin. Þeir verða skjólstæðingar Bleeth, sem er í innra eftirliti lögreglunnar, þegar þeir eru sakaðir um að valda dauða þriggja samstarfsmanna sinna innan lögreglunnar.
Bleeth lítur eftir Don Johnson

YASMINE Bleeth úr Strandvörðum hefur fengið hlutverk í sjónvarpsþáttunum "Nash Bridges". Don Johnson er í aðalhlutverki í þáttunum í gervi lögreglumannsins Nash Bridges. Félagi hans í lögreglunni er leikinn af Cheech Marin. Þeir verða skjólstæðingar Bleeth, sem er í innra eftirliti lögreglunnar, þegar þeir eru sakaðir um að valda dauða þriggja samstarfsmanna sinna innan lögreglunnar. Það fylgir sögunni að Bleeth og Johnson eigi eftir að lenda í ástarsambandi í þáttunum.