ÞANN 15. september næstkomandi verður afgreiðsla Flugleiða á John F. Kennedy-flugvelli í New York færð yfir á farþegamiðstöð 7 (Terminal 7). Þar mun British Airways sjá um afgreiðslu og innritun farþega Flugleiða en jafnframt verður þar starfsfólk frá Flugleiðum. Farþegar Flugleiða, sem ferðast á Saga-Class, geta framvegis nýtt sér setustofu BA, British Airways Executive Club Lounge.
Flugleiðir á JFK Afgreiðslan flytur á Terminal 7 ÞANN 15. september næstkomandi verður afgreiðsla Flugleiða á John F. Kennedy-flugvelli í New York færð yfir á farþegamiðstöð 7 (Terminal 7). Þar mun British Airways sjá um afgreiðslu og innritun farþega Flugleiða en jafnframt verður þar starfsfólk frá Flugleiðum. Farþegar Flugleiða, sem ferðast á Saga-Class, geta framvegis nýtt sér setustofu BA, British Airways Executive Club Lounge. Hún er á þriðju hæð fyrir ofan innritunarsvæðið. Þar eru í boði veitingar en einnig hafa farþegar greiðan aðgang að greiðslukortasímum, tölvuaðstöðu og ljósritunarvélum, svo nokkuð sé nefnt.