HÁHYRNINGURINN Keikó, sem nú dvelur í kví sinni í Klettsvík í Vestmannaeyjum, er við góða heilsu og hefur góða matarlyst. Að sögn Halls Hallssonar, talsmanns Free Willy-samtakanna, var Keikó við stökkæfingar í gærmorgun en hann stundar ýmsar æfingar daglega, sér til styrkingar.

Keikó lystargóður

HÁHYRNINGURINN Keikó, sem nú dvelur í kví sinni í Klettsvík í Vestmannaeyjum, er við góða heilsu og hefur góða matarlyst. Að sögn Halls Hallssonar, talsmanns Free Willy-samtakanna, var Keikó við stökkæfingar í gærmorgun en hann stundar ýmsar æfingar daglega, sér til styrkingar. Hallur segir að menn séu ánægðir með hve vel háhyrningurinn hefur aðlagast nýjum dvalarstað, hann sé athugull og áhugasamur um umhverfi sitt og mikið á ferðinni, eins og Hallur orðar það.