NÁMSGAGNASTOFNUN hefur í samvinnu við Lionshreyfinguna gefið út nýtt efni í Lions-Quest. Áður hefur komið út efnið Að ná tökum á tilverunni sem notað hefur verið í fjölmörgum grunnskólum undanfarin ár. Nýja efnið heitir Í sátt og samlyndi og er ætlað 14­15 ára unglingum (8.­9. bekk).
Í sátt og samlyndi

Frá Jóni Gröndal:

NÁMSGAGNASTOFNUN hefur í samvinnu við Lionshreyfinguna gefið út nýtt efni í Lions-Quest. Áður hefur komið út efnið Að ná tökum á tilverunni sem notað hefur verið í fjölmörgum grunnskólum undanfarin ár. Nýja efnið heitir Í sátt og samlyndi og er ætlað 14­15 ára unglingum (8.­9. bekk).

Markmið

Námsefnið hefur það að markmiði að kenna unglingum góð samskipti, að þekkja eigin tilfinningar og að leysa ágreining án ofbeldis.

Námsefnið er þýtt úr ensku. Sérfræðingar fræðslustofnunarinnar Quest International sömdu efnið. Stofnun þessi hefur verið samstarfsaðili Lionshreyfingarinnar um alllangt skeið. Um íslenska þýðingu sáu þær Erla Kristjánsdóttir og Aldís Yngvadóttir. Námsefnið Í sátt og samlyndi er enn eitt dæmi um farsælt samstarf Lionshreyfingarinnar og stjórnvalda sem hófst með útgáfu á efninu "Að ná tökum á tilverunni" árið 1990.

Lionshreyfingin lítur á kostun þýðingar og annan stuðning við notkun og útgáfu Lions-Quest námsefnis sem mikilsvert framlag til aukinna forvarna gegn vímuefnaneyslu barna og ungmenna í landinu og veigamikinn stuðning við menntun í landinu.

Námsefnið "Í sátt og samlyndi" var kennt í tilraunaskyni að hluta í nokkrum skólum hér veturinn 1997­98.

Þar safnaðist mikilsverð reynsla og upplýsingar sem nýttust við lokagerð efnisins.

Forsendur nýja námsefnisins

Með þessu nýja námsefni á að reyna

að breyta viðhorfum unglinga til samskipta við aðra,

að auka þekkingu nemenda á aðferðum sem fela ekki í sér ofbeldi, s.s. að hafa stjórn á reiði sinni, að leysa úr ágreiningi og að komast að samkomulagi,

að styrkja hegðun sem hjálpar unglingum við að beita þekkingu sinni.

Námsefnið er byggt á eftirfarandi forsendum sem grundvallast á niðurstöðum nýrra rannsókna á vörnum gegn ofbeldi:

Ágreiningur er ein af staðreyndum lífsins og hluti af öllum samskiptum manna.

Reiði er sterk en eðlileg vanlíðan og henni fylgja líkamleg viðbrögð.

Reiði getur verið jákvæð og opnað leiðir til farsælla lausna.

Reiði er sterk tilfinning sem getur brotist út í ofbeldi ef ekki eru hafðar hömlur á henni.

Ofbeldi er ekki viðunandi hegðun í kjölfar reiði og ágreinings.

Virðing og umburðarlyndi fyrir ólíkum kynþáttum, kynferði, trúarbrögðum og annars komar mismun manna í milli eru forsendur þess að ágreining megi leysa á friðsamlegan hátt.

Ungt fólk getur lært að hemja reiði sína og leysa þannig ágreining á friðsamlegan hátt, án íhlutunar fullorðinna.

Allir verða að meta gildi friðar og læra aðferðir til að hafa stjórn á reiði sinni, leysa vandamál og koma í veg fyrir ofbeldi í lífi sínu. Árangur af kennslu Í sátt og samlyndi var kannaður í bandarísku stórborginni Detroit árið 1996. Í ljós kom að nemendur sem fengust við efnið sýndu mun betri samskiptahæfni og jákvæðari hegðun en þeir sem voru til samanburðar og fengust ekki við efnið. Þá fækkaði tilvikum ofbeldishegðunar um 68% hjá þeim nemendum sem fengust við efnið samanborið við hina.

Lokaorð

Eins og áður segir er námsefnið gefið út af Námsgagnastofnun með styrkjum frá Lionshreyfingunni og er tilbúið til kennslu. Efnið samanstendur aðallega af kennarahandbók en engin sérkennslubók er fyrir nemendur þannig að efnið er ódýrt fyrir skóla. Þeim skólum sem áhuga kynnu að hafa á að taka þetta námsefni er bent á að snúa sér til Námsgagnastofnunar og Aldísar Yngvadóttur þar.

JÓN GRÖNDAL,

kynningarstjóri Lionshreyfingarinnar.