BÖRN og fullorðnir höfðu margt að skoða í Sjávarútvegshúsinu við Skúlagötu í Reykjavík á degi hafsins í gær. Þar kynntu Hafrannsóknastofnun, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins og Fiskistofa starfsemi sína á líflegan hátt. Um landið allt var dagurinn haldinn hátíðlegur í sjóminjasöfnum og rannsóknastofnunum og bryddað upp á ýmsum tiltækjum í tilefni dagsins.
Skoða lífið úr sjónum

Morgunblaðið/Árni Sæberg