ÞRÍR Hollendingar eru nú í Hornafirði að undirbúa og kynna fyrirhugaða gönguferð yfir Suðurskautslandið. Hollendingarnir þrír hyggjast ganga þvert yfir Suðurskautslandið. Leggja þeir af stað um næstu mánaðamót og reikna með að vera 90 daga á leiðinni. Þeir eru nú hér á landi til að kynna ferðina og þann búnað sem notaður er.
Kynna Suðurskautsferð á Vatnajökli

ÞRÍR Hollendingar eru nú í Hornafirði að undirbúa og kynna fyrirhugaða gönguferð yfir Suðurskautslandið.

Hollendingarnir þrír hyggjast ganga þvert yfir Suðurskautslandið. Leggja þeir af stað um næstu mánaðamót og reikna með að vera 90 daga á leiðinni. Þeir eru nú hér á landi til að kynna ferðina og þann búnað sem notaður er. Að sögn Tryggva Árnasonar, framkvæmdastjóra Jöklaferða, kemur í dag 28 manna hópur blaðamanna og fulltrúa styrktaraðila ferðarinnar til að fylgjast með kynningunni en hún fer meðal annars fram á Vatnajökli.