FELLIBYLURINN Georg gekk yfir eyjar við suðurodda Flórída í gær eftir að hafa kostað að minnsta kosti 240 manns lífið síðustu fimm daga á eyjum í Karíbahafi. Vindhraðinn var mestur um 160 km á klukkustund í gær og fellibylurinn olli flóðbylgju við strendur Flórída.
Fellibylurinn Georg veldur usla í suðurhluta Flórída

Hefur kostað á þriðja

hundrað mannslíf

Miami. Reuters.

FELLIBYLURINN Georg gekk yfir eyjar við suðurodda Flórída í gær eftir að hafa kostað að minnsta kosti 240 manns lífið síðustu fimm daga á eyjum í Karíbahafi. Vindhraðinn var mestur um 160 km á klukkustund í gær og fellibylurinn olli flóðbylgju við strendur Flórída.

Fellibylurinn náði yfir 480 km langt svæði og hans gætti frá suðurhluta Kúbu til Palm Beach á Flórída. Talið var að hann myndi valda mestu tjóni á eyjunni Key West, sem er þekkt fyrir listamannanýlendu sína.

Milljónir íbúa suðausturstrandar Flórída vörpuðu öndinni léttara í gær þegar fellibylurinn færðist vestur á bóginn, þannig að óveðrinu slotaði í Miami og Fort Lauderdale. Yfirvöld hvöttu þó íbúana til að halda sig innandyra.

Jón Sullenberger, sem býr ásamt fjölskyldu sinni í Miami, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hvöss austanátt hefði verið í borginni og nágrenni hennar í fyrrinótt. Vindhraðinn hefði verið mestur um 70­90 km á klukkustund en svæðið hefði sloppið að mestu við úrhellið sem fylgdi fellibylnum, en mesta rigningin var sunnan við hann.

Rafmagnslaust var víða í Miami, m.a. í húsi Jóns, en rafmagn komst á síðdegis í gær að íslenskum tíma. Jón kvaðst hafa búið sig vel undir óveðrið, neglt fyrir glugga, tekið allt lauslegt inn og birgt sig upp af matvælum. Flestir íbúar svæðisins hefðu birgt sig upp af nauðsynjavörum á þriðjudag og miðvikudag til að vera ekki á síðustu stundu með innkaupin eins og henti marga þegar fellibylurinn Andrés gekk yfir Flórída árið 1992.

Georg er fyrsti fellibylurinn sem hefur ógnað Flórída frá 1992, en tjónið sem Andrés olli þá var metið á 25 milljarða dala, 1.800 milljarða króna.

Götur í bæjum og borgum suðurhluta Flórída voru nánast mannlausar í gær. Skólar voru lokaðir, starfsemi fyrirtækja lá niðri og hlerar voru fyrir gluggum verslana og íbúðarhúsa.

Gífurleg eyðilegging

Tölur yfir manntjónið á eyjunum í Karíbahafi hækkuðu verulega í gær. Embættismenn á Haítí sögðu að a.m.k. 87 manns hefðu beðið bana þar og 34 til viðbótar væri saknað. Fellibylurinn kostaði a.m.k. 134 lífið í Dóminíska lýðveldinu.

Rafmagnslaust var víða í Dóminíska lýðveldinu og margir bæir voru einangraðir vegna flóða. Áætlað var að 90% landbúnaðaruppskerunnar hefðu eyðilagst. Forseti landsins, Leonel Fernandez, lýsti yfir neyðarástandi og óskaði eftir erlendri aðstoð. Að minnsta kosti 100.000 íbúar Dóminíska lýðveldisins misstu heimili sín.

Þúsundir manna misstu einnig heimili sín á Haítí og fellibylurinn eyðilagði þar 80­85% landbúnaðaruppskerunnar.

Að minnsta kosti 11 manns biðu bana af völdum fellibylsins í Púertó Ríkó. Fjórir létu lífið á eyjunni St. Kitts á sunnudag og tveir í Antigua og Barbuda.

Fellibylurinn kostaði a.m.k. þrjá lífið á Kúbu og rúmlega hálf milljón manna dvaldi þar í bráðabirgðaskýlum. Mörg svæði voru án rafmagns, vatns og símasambands.



Reuters ÞESSI mynd var tekin í auga fellibylsins Georgs úr bandarískri flugvél sem fylgdist með óveðrinu í gær.

Reuters ÍBÚAR Holguin á Kúbu virða fyrir sér tré sem rifnaði upp með rótum í fellibylnum þegar hann gekk yfir eyjuna í fyrradag.