RITHÖFUNDURINN Salman Rushdie sagði á fundi með fréttamönnum í gær að sú yfirlýsing Íransstjórnar að hún myndi ekki ógna lífi hans markaði endalok ömurlegs tímabils. "Þetta er stórkostlegur dagur," sagði Rushdie, og kvað líklegt að næsta bók sín myndi fjalla um þá reynslu að hafa dauðadóm yfir höfði sér í heilan áratug.
Salman Rushdie getur nú loks um frjálst höfuð strokið

"Stórkostlegur dagur"

London. Reuters.

RITHÖFUNDURINN Salman Rushdie sagði á fundi með fréttamönnum í gær að sú yfirlýsing Íransstjórnar að hún myndi ekki ógna lífi hans markaði endalok ömurlegs tímabils. "Þetta er stórkostlegur dagur," sagði Rushdie, og kvað líklegt að næsta bók sín myndi fjalla um þá reynslu að hafa dauðadóm yfir höfði sér í heilan áratug.

Rushdie hefur verið undir lögregluvernd í Bretlandi síðan árið 1989, þegar Khomeini, erkiklerkur í Íran, gaf út trúarlega tilskipun um að hann væri réttdræpur hvar sem til hans næðist, vegna bókarinnar Söngvar Satans, sem þótti innihalda guðlast. "Það eina sem ég hef þráð er að geta snúið aftur til venjulegs lífs, eða í öllu falli venjulegs lífs rithöfundar", sagði Rushdie aðspurður hvað hann teldi sig mundu endurheimta, nú þegar ógnin væri yfirstaðin.

"Venjulegt líf er afar hversdagslegt, en mér hefur verið neitað um það. Að taka eigin ákvarðanir án þess að þurfa að bera þær undir aðra. Að gera eitthvað nákvæmlega þegar mann langar til, eins og til dæmis að fara í göngutúr. Þetta er ómögulegt þegar maður er undir öryggisgæslu," sagði Rushdie við fréttamenn.

Þó er ljóst að nokkur bið muni verða á því að hann öðlist fullkomlega "venjulegt líf". Flugfélagið British Airways ítrekaði til dæmis í gær að það tæki ekki í mál að fljúga með hann. Þá þurfti á síðustu stundu að finna nýjan stað fyrir blaðamannafund hans í gær, eftir mótmæli í byggingunni þar sem fundurinn átti upphaflega að fara fram.

Undarleg reynsla

Það er varla hægt að ofmeta áhrifin sem dauðadómur Khomeinis hefur haft á líf Rushdies. Fyrrverandi eiginkona hans, bandaríski rithöfundurinn Marianne Wiggins, sagði skilið við hann vegna álagsins, en hann kvæntist á ný og hefur eignast son með núverandi eiginkonu sinni. Hann segir að stuðningur fjölskyldunnar hafi verið sér lífsnauðsynlegur, og ekki skal efa að hann hafi þurft á uppörvun að halda.

"Það er mjög undarleg reynsla að sjá fólk ganga um stræti í fjarlægum borgum með mynd af manni sjálfum sem búið er að rífa augun úr, öskrandi dauðahótanir," sagði Rushdie. Hann skýrði jafnframt frá því að breskir embættismenn hefðu tjáð sér að yfir tuttugu mönnum hefði verið vísað úr landi vegna gruns um að þeir hefðu í hyggju að framfylgja dauðadómnum. Síðustu ár hefur hann þó hægt og rólega farið að láta meira á sér bera, og hefur jafnvel áritað bækur sínar opinberlega og farið á knattspyrnuleiki.

Rushdie kvaðst ekki sjá eftir neinu. Hann sagði að Söngvar Satans hefði verið óhjákvæmilegt skref á rithöfundarferli sínum og aftók að hann myndi biðjast afsökunar á innihaldi bókarinnar. Rushdie og stuðningsmenn hans hafa barist einarðlega fyrir frelsi einstaklingsins til að tjá skoðanir sínar. "Þetta er barátta fyrir grundvallaratriðum, fyrir hugsanafrelsi, fyrir málfrelsi, fyrir réttinum til að geta gengið úti á götu í heimalandi sínu án þess að þurfa að óttast", sagði hann.

Á blaðamannafundinum í gær sagði Rushdie að sig hefði lengi langað að skrifa bók um reynslu sína, en að sér hefði fundist að rétti tíminn til þess yrði þegar hann vissi hvernig síðasti kaflinn ætti að enda.

Samkomulaginu fagnað

Utanríkisráðherrar Írans og Bretlands komust á fimmtudag að samkomulagi um að taka upp fullt stjórnmálasamband að nýju, eftir að Bretar töldu sig hafa fengið fullvissu um að Íranar myndu ekki ógna lífi Rushdies. Robin Cook, utanríkisráðherra Bretlands, sagði að samkomulagið markaði þáttaskil í samskiptum Breta, sem og allra ríkja Evrópusambandsins, við Íran. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, lýsti yfir ánægju með þróun mála, og hefur ásamt Jacques Chirac Frakklandsforseta borið lof á stjórnvöld í Íran.

Stjórnmálaskýrendur hafa fullyrt að þessi tímamót séu til marks um sterka stöðu Mohammads Khatamis, forseta Írans, sem hefur orð á sér fyrir að vera umbótasinnaður og jákvæðari í garð Vesturlanda en margir landar hans.

Lítil viðbrögð hafa enn sem komið er orðið við samkomulaginu í Íran. Enginn vafi leikur þó á því að þar finnist ennþá menn sem hafi fullan hug á að koma Rushdie fyrir kattarnef. Góðgerðarstofnun í Teheran, sem hefur heitið hverjum þeim sem banaði honum jafnvirði nær 200 milljóna íslenskra króna, hefur til að mynda ekki dregið það til baka. Áratugarafmæli tilskipunar Khomeinis í febrúar á næsta ári verður líkast til prófsteinn á afstöðu heittrúaðra Írana til málsins.

Reuters

RITHÖFUNDURINN Salman Rushdie var kampakátur á blaðamannafundi í London í gær.