MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Árna M. Mathiesen: "Vegna fréttar í Morgunblaðinu 24. september 1998 þar sem því er ranglega haldið fram af Bárði Halldórssyni að ég sé félagi í Samtökum um þjóðareign vil ég taka fram að ég er ekki félagi í þessum samtökum, hef aldrei verið félagi í þessum samtökum,

Yfirlýsing

MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Árna M. Mathiesen:

"Vegna fréttar í Morgunblaðinu 24. september 1998 þar sem því er ranglega haldið fram af Bárði Halldórssyni að ég sé félagi í Samtökum um þjóðareign vil ég taka fram að ég er ekki félagi í þessum samtökum, hef aldrei verið félagi í þessum samtökum,hef ekki mætt á neina fundi hjá samtökunum né haft nokkur önnur samskipti við samtökin."