Fagnaði með gulrót BRASILÍSKI framherjinn Edmilson Ferreira úr liðinu Atletico Mineiro fagnar marki með því að borða gulrót sem hann dró upp úr buxum sínum. Markið skoraði hann gegn liðinu Ameríka sem hefur viðurnefnið "Kanína". Þetta "fagn" framherjans var gagnrýnt af mörgum, m.a. dómara úr heimsmeistarakeppninni.

Fagnaði

með gulrót

BRASILÍSKI framherjinn Edmilson Ferreira úr liðinu Atletico Mineiro fagnar marki með því að borða gulrót sem hann dró upp úr buxum sínum. Markið skoraði hann gegn liðinu Ameríka sem hefur viðurnefnið "Kanína". Þetta "fagn" framherjans var gagnrýnt af mörgum, m.a. dómara úr heimsmeistarakeppninni. "Ég ætlaði ekki að móðga neinn með þessum brandara," sagði Emilson. "Þetta var bara til að lífga upp á leikinn," bætti hann við.