SLÖKKVILIÐINU í Reykjavík barst í gærkvöld tilkynning um reyk í íbúð við Þórsgötu í Reykjavík. Slökkviliðið var mætt kl. 21.15 og sendi reykkafara inn í íbúðina og bjargaði tveimur köttum sem eigandi íbúðarinnar átti. Orsakir reyksins voru raktar til þess að kveikt var í blaðarusli í stigagangi hússins. Litlar skemmdir urðu af völdum reyksins.

Reykur í íbúð

SLÖKKVILIÐINU í Reykjavík barst í gærkvöld tilkynning um reyk í íbúð við Þórsgötu í Reykjavík. Slökkviliðið var mætt kl. 21.15 og sendi reykkafara inn í íbúðina og bjargaði tveimur köttum sem eigandi íbúðarinnar átti. Orsakir reyksins voru raktar til þess að kveikt var í blaðarusli í stigagangi hússins. Litlar skemmdir urðu af völdum reyksins. Málið er til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík.