Aron Valur Guðmundsson Elsku Aron Valur, það er erfitt fyrir okkur að skilja að þú sért farinn til Guðs og englanna. Við sem áttum eftir að heimsækja þig. Við vonuðum að þú yrðir hér hjá okkur á jólunum. Við ætluðum að passa þig og vera svo góðar við þig en nú vitum við að þú ert ekki lengur mikið veikur á spítalanum og nú passar Guð þig, við viljum kveðja þig með bæninni okkar.

Leiddu mína litlu hendi

ljúfi Jesú þér ég sendi

bæn frá mínu brjósti sjáðu

blíði Jesús að mér gáðu.

Þínar litlu frænkur,

Sandra og Sunna.