Elísabet (Betty) Jóhannsson Elsku amma Betty, nú ertu farin frá okkur. Ég hefði viljað kynnast þér betur, elsku Betty mín, en nú ertu heilbrigð og þér líður vel. Elsku amma Betty, ef þú bara vissir hvað ég sakna þín mikið. Ég man svo vel eftir því þegar við Lára komum til þín í hádeginu og þú gafst okkur að borða og við áttum góðar stundir og hlógum alltaf saman. En nú ertu komin til himna og ert hjá Einari þínum. Þó að þú sért farin frá okkur á ég alltaf minningar um þig og þær mun ég varðveita. Ég bið Guð að styrkja fjölskyldu og aðra aðstandendur.

Ég kveð þig nú, elsku amma Betty.

Arna Lind.