Elisabeth (Betty) Jóhannsson

Hvert blóm, sem grær við götu mína,

er gjöf frá þér,

og á þig minnir allt hið fagra,

sem augað sér.

Sól og jörð og svanir loftsins

syngja um þig.

Hvert fótspor, sem eg færist nær þér,

friðar mig.

(Davíð Stef.) Elsku amma, með þessum orðum viljum við kveðja þig og þakka þér fyrir allt það sem þú hefur gefið okkur. Guð geymi þig.

Elísabet og Björn Magnús.