Guðmundur E. Sigurðsson Elsku pabbi minn.

Þá er komið að stóru kveðjustundinni sem ég hélt að yrði ekki fyrr en eftir 100 ár. En svona er lífið, við fáum engu ráðið um það. Ég vil þakka þér allar yndislegu stundirnar sem við áttum saman og umhyggjuna sem þú alltaf sýndir mér og minni fjölskyldu. Elsku pabbi, ég dáðist að styrk þínum í öllum þínum veikindum og hvernig þú hafðir alltaf mátt til að láta okkur vita að þú elskaðir okkur þrátt fyrir þína erfiðleika. Guð blessi þig og varðveiti og gefi okkur styrk til að elska lífið á ný.

Sólveig Ágústa.