Guðmundur E. Sigurðsson Elsku afi minn.

Fá orð fá því lýst hversu mikið ég sakna þín, hversu heitt ég elska þig og hversu stolt ég var að eiga þig sem afa minn. Minninguna um þig þig mun ég ávallt geyma í hjarta mínu og varðveita vel.

Ég man allar okkar stundir eins og þær hafi gerst í gær, t.d. þegar við vorum að snyrta garðinn og þú leyfðir mér að prufa rafmagnsklippurnar þínar. Mér fannst ég þá vera svo stór því þú settir ábyrgðina í mínar hendur.

Ég mun aldrei gleyma hvað mér fannst gott að hafa þig með mér á sundmótum, því þú studdir alltaf svo vel við bakið á mér. Elsku afi minn, ég veit að þér líður vel núna og sál þín hefur fengið frið.

Ég elska þig af öllu mínu hjarta og hlakka til að hitta þig aftur. Megi guð geyma þig.

Eygló Anna.