FIAT-verksmiðjurnar kynna um þessar mundir frumlegan fjölnotabíl af minni gerðinni, Multipla. Þetta er sex manna bíll með þó nokkru farangursrými, framdrifinn og fáanlegur með bensín- eða dísilvélum. Multipla er væntanlegur hingað til lands snemma á næsta ári að sögn Páls Gíslasonar, framkvæmdastjóra Ístraktors, sem hefur umboð fyrir Fiat.

Frumlegur

Multipla

frá Fiat

FIAT-verksmiðjurnar kynna um þessar mundir frumlegan fjölnotabíl af minni gerðinni, Multipla. Þetta er sex manna bíll með þó nokkru farangursrými, framdrifinn og fáanlegur með bensín- eða dísilvélum. Multipla er væntanlegur hingað til lands snemma á næsta ári að sögn Páls Gíslasonar, framkvæmdastjóra Ístraktors, sem hefur umboð fyrir Fiat.

Roberto Testore, forstjóri Fiat, sagði á blaðamannafundi í Torino síðastliðinn þriðjudag er bíllinn var kynntur bílablaðamönnum í Evrópu, að Multipla Fiat væri ætlað að mæta nýjum þörfum þegar viðhorf manna væru að breytast, bíll sem væri þægilegur að ferðast í og auðveldur í notkun hvar sem er. Aðal Multipla væri hversu auðvelt væri að laga hann að hinum ýmsu þörfum eigenda.

Vaxandi markaður

Markaður fyrir fjölnotabíla fer hratt vaxandi í Evrópu en flestir framleiðendur hafa boðið stóra bíla í þessum flokki, átta til níu manna. Multipla er hins vegar sex manna. Áætlað er að framleiða 60 þúsund bíla á ári og hefst salan á heimamarkaði nú í nóvember en í byrjun næsta árs í öðrum löndum Evrópu. Bíllinn er framleiddur í Mirafiori verksmiðju Fiat í Torino.

Multipla er með hefðbundnum útlítum langbaks eða fjölnotabíla en þar endar samlíkingin því hann er innan þess ramma merkilega frábrugðinn þeim frændum sínum. Vélarhúsið er bogalaga og frumlegur stallur við neðri brún framrúðu setur sérstakan svip á bílinn og þar er að finna aukaluktir. Framrúðan er mikið hallandi sem gefur gott rými fyrir mælaborð enda er engu líkara en Multipla sé mun stærri að innan en utan. Afturendinn er þverskorinn og örlítið bungumyndaður. Bíllinn er 3,99 m langur, 1,87 m á breidd og 1,67 m hár. Hann vegur 1.300 kg

Mælaborð er í miðju sem er sérlega skemmtileg tilbreyting. Ökumaður horfir ótruflaður fram á veginn en sér þó auðveldlega útundan sér á hraðamælinn og annað sem þarf að fylgjast með í akstri. Í mælaborðinu er að finna flest sem ökumaður þarf á að halda en þó söknuðum við Íslendingarnir sem reyndum bílinn snúningshraðamælis. Gírstöng er framan á mælaborðinu, er mjög stutt og þarf því lítið að hreyfa hana og ökumaður er fljótur að venjast bæði staðsetningunni og þessum skemmtilega stubbi og lipra. Sætaskipan er þannig að tveir farþegar sitja við hlið ökumanns og þrjú sæti eru afturí og auk þeirra nokkurt farangursrými aftast.

Fjölhæf sætaskipan

Sætin eru stök og má kippa þeim úr eftir hentugleikum og nýta bílinn eins og hvert verkefni krefst. Miðjuframsætið er örlítið aftar en hin en samt vantar ekki mikið uppá að ökumaður fitli við vinstra hné miðjufarþegans þegar hann skiptir. Að öðru leyti er miðjufarþeginn ekki til óþæginda en hann nýtur ekki eins mikils fótarýmis og aðrir í bílnum og myndi því vart endast þar í langferð. Þá er tæpast nægilegt höfuðrými í útgáfunni með sóllúgu sem eru bæði yfir fram- og aftursætum en þetta tvennt er nánast það eina sem finna má að rými í Multipla.

Multipla er feikn skemmtilegur bíll í akstri. Reyndir voru bæði bensín- og dísilbílar á um 200 km hring á Norður-Ítalíu og er vinnsla og hegðan þeirra beggja mjög svipuð. Bensínvélin virðist þó fara á meiri snúning og vera háværari en dísilvélin á miklum hraða á hraðbrautunum, að minnsta kosti þegar komið er á um og yfir 140 km hraða. Multipla er hins vegar mjög hljóðlátur og kom á óvart að hvorki skyldi vera nokkur hávaði að ráði frá vegi eða vindi þegar komið var á þetta mikla ferð.

Bíllinn er lipur í þrengslum og á krókóttum leiðum er hann rásfastur og virðist honum ekki hætt við óvæntum stökkum. Hann mætti leggja heldur betur á en það kom þó ekki alvarlega að sök. Nokkuð vantar á að viðbragðið sé snöggt og á það bæði við um 1,6 lítra bensínvélina sem er 103 hestöfl og 1,9 lítra dísilvélina en hún er 105 hestöfl. Hámarkshraði á báðum er uppgefinn 170 km/klst. og viðbragðið úr kyrrstöðu í 100 km hraða nánast það sama, 12,6 sekúndur á bensínvélinni og 12,4 með dísilvél.

Þá er Multipla nú þegar boðinn með vél sem gengur á metangasi og er fjórum tönkum komið fyrir undir bílgólfinu og rýrir ekki annað pláss í bílnum. Síðar verður í boði bíll með tvenndarvél og rafbíll einnig.

Góður staðalbúnaður

Búnaður í Multipla er nokkuð hefðbundinn og kannski ríflega það, þ.e. rafdrifnar rúður og speglastillingar, tveir líknarbelgir og völ á hliðarbelgjum einnig, hemlalæsivörn og mjög hentugt í bíl sem þessum er sá mikli fjöldi smáhólfa og vasa sem finna má nánast um allan bíl.

Verð á Multipla hérlendis er óvíst en ef finna á eitthvað til samanburðar má nefna Renault Megane Scénic, sem er svipaður fjölnotabíll. Það þýðir kannski um 1.700 þúsund krónur og verði Multipla nálægt því ætti hann að ná fótfestu. Multipla er áhugaverður bíll og fjölhæfur til ferðalaga sem og þéttbýlisnotkunar og er því raunhæfur kostur í margs konar samkeppni hér.

Jóhannes Tómasson

Morgunblaðið/jt MULTIPLA frá Fiat er sex manna fjölnotabíll sem býður uppá ýmsa skemmtilega eiginleika.

HÆGT er að leggja niður miðjusætið frammí og eins og sjá má er mælaborðið skemmtilega frumlegt.

ÚTLIT Multipla er líflegt.

RÝMI fyrir farangur mælist frá 385 lítrum ef öll sæti eru í bílnum en það er stækkanlegt í 1.255 lítra.