Nýjar áherslur SHARON Stone hefur snúið við blaðinu. Nú vill hún ekki að fólk sjái sig sem metnaðargjarna leikkonu sem geri nánast hvað sem er fyrir sviðsljósið.
Nýjar áherslur

SHARON Stone hefur snúið við blaðinu. Nú vill hún ekki að fólk sjái sig sem metnaðargjarna leikkonu sem geri nánast hvað sem er fyrir sviðsljósið. Hún lætur eiginmanninn Phil Bronstein, sem er blaðamaður, fá það óþvegið þegar fjölmiðla ber á góma, en leikkonan er orðin langþreytt á fjölmiðlaumfjöllun um sig.

Stone segist vera mjög trúuð, og segir að trúin sé ástæðan fyrir velgengni hennar og ánægju með lífið þessa dagana. Fæstir vita eflaust að Stone biðst gjarnan fyrir þegar hún er við upptökur mynda sinna, en leikkonan segir að það hafi aldrei staðið henni fyrir þrifum.

Nýjasta mynd leikkonunnar, "The Mighty" fær góða dóma vestanhafs, og segir Stone að nú leggi hún áherslu á að fá góð hlutverk í myndum sem skipta máli.

SHARON Stone á frumsýningu nýjustu myndar sinnar, "The Mighty".