Fáir bandarískir handritshöfundar búa að þeirri reynslu eða eiga að baki þau afrek í kvikmyndahandritagerð sem Robert Towne getur státað af. Hann hefur starfað með öllum fremstu hæfileikamönnum draumaverksmiðjunnar frá Jack Nicholson og Warren Beatty til Tom Cruise. Hann skrifaði handrit Kínahverfisins eða "Chinatown" á hátindi ferils síns.
Í miðpunkti Handritshöfundurinn Robert Towne hefur upplifað sitthvað í draumaverksmiðjunni Hollywood en hann er m.a. höfundur Kínahverfisins og í fremstu röð í sínu fagi að sögn Arnaldar Indriðasonar . Fáir bandarískir handritshöfundar búa að þeirri reynslu eða eiga að baki þau afrek í kvikmyndahandritagerð sem Robert Towne getur státað af. Hann hefur starfað með öllum fremstu hæfileikamönnum draumaverksmiðjunnar frá Jack Nicholson og Warren Beatty til Tom Cruise. Hann skrifaði handrit Kínahverfisins eða "Chinatown" á hátindi ferils síns. Á þeim tíma var Robert Redford upp á sitt besta og framleiðandinn Robert Evans (Guðfaðirinn, Kínahverfið) lét hafa eftir sér: "Ég mundi fremur gera næstu fimm myndir eftir handritum Towne en gera næstu fimm myndir Roberts Redfords." Handrit Kínahverfisins er eitt helsta kennslutækið í kvikmyndahandritakennslu víða um heim enda með betri verkum sem samin hafa verið fyrir bíó; Roman Polanski gerði úr því meistaraverk. "Eftir því sem árin líða hef ég komist að því að enginn hefur kennt mér meira en Roman Polanski," segir Towne. Áhrifa gætir víða Áhrifa Towne gætir víða og hans er ekki alltaf getið fyrir innlegg sitt í bíómyndirnar. Hann starfaði með Nicholson við gerð "The Last Detail" og auðvitað Kínahverfisins, einnig "The Missouri Breaks" og "The Two Jakes", sem hvorki var fugl né fiskur og rofnaði gamalt vinasamband þeirra eftir þau mistök. Samstarf hans og Beattys byrjaði með því að hann tók að sér að endurskoða handritið að Bonny og Clyde en vann síðar með honum við "The Parallax View", einhverjum skemmtilegasta trylli síðustu þrjátíu ára, "Shampoo", "Heaven Can Wait" og "Reds". Towne vann fyrst með Cruise við "Days of Thunder", síðan "The Firm" og loks "Mission: Impossible". Nú hefur Cruise endurgoldið honum með því að framleiða þriðju bíómyndina sem Towne leikstýrir sjálfur og heitir "Without Limits" en hún segir frá ævi hlauparans Steve Prefontaine. Hinar myndirnar sem Towne hefur leikstýrt eru "Personal Best", önnur íþróttamynd, og spennumyndin "Tequila Sunrise", sem var hálf misheppnuð. Þar fyrir utan hefur Towne verið viðriðinn eitthvað á fjórða tug bíómynda hvort sem hann hefur verið kallaður til þess að lagfæra handrit þeirra eða skrifað þau sjálfur. Þeirra á meðal eru myndir eins og "The New Centurions", Maraþonmaðurinn og "Frantic", sem hann gerði með Polanski í París. Nýlega birti kvikmyndatímaritið Movieline athyglisvert viðtal við Towne í tilefni þess að nýja myndin hans verður senn frumsýnd ef ekki er þegar búið að frumsýna hana vestra og er gaman að grípa niður í viðtalinu og skoða hvað handritshöfundurinn hefur að segja um samferðamenn sína og bíómyndirnar sem hann hefur verið viðriðinn. Þegar Francis Coppola tók á móti Óskarnum fyrir Guðföðurinn á sínum tíma þakkaði hann í hefðbundinni þakkarræðu Towne fyrir að hafa samið sérstaklega mikilvægt atriði í myndinni. "Francis spurði mig," segir Towne, "hvort ég vildi að mín yrði getið sem handritshöfundar á kreditlista myndarinnar og ég sagði: Til hvers í andskotanum? Þetta var bara eitt atriði. Þegar þú tekur á móti Óskarnum fyrir myndina geturðu þakkað mér fyrir það. Af því að ég þekki Francis vel vissi ég að hann mundi gera það." Atriðið sem Francis bað hann að skrifa fyrir sig er með Marlon Brando og Al Pacino og lýsir því þegar sonurinn Michael tekur við af guðföðurnum. Towne varð að vera snar í snúningum því Brando átti aðeins einn dag eftir í tökum. Brando bað Towne um að lesa atriðið upphátt fyrir sig þar sem hann sat í förðunarherberginu og spurði út í hvert smáatriði. "Hann vildi vita nákvæmlega allt sem ég gat sagt honum um það, allt sem ég geymdi í kollinum varðandi senuna." Þyrnum stráður ferill Leikstjóraferill Towne er þyrnum stráður. Fyrsta myndin sem hann leikstýrði var "Personal Best" en framleiðslan lenti í miklum erfiðleikum vegna verkfalla og Towne lenti í útistöðum við milljarðamæringinn David Geffen, sem framleiddi. Towne skrifaði handritið að Tarzan-myndinni "Greystoke: Legend of Tarzan, Lord of the Apes" en fékk ekki að leikstýra henni sjálfur og það eru stærstu vonbrigðin sem hann hefur orðið fyrir á ferli sínum. "Ég held að það hefði orðið besta myndin sem ég hefði gert ef ég hefði fengið tækifæri til þess að leikstýra henni," segir hann. Þess í stað var hún gerð af breska leikstjóranum Hugh Hudson og olli talsverðum vonbrigðum. Næst þegar Towne fékk tækifæri til þess að stýra sínu eigin handriti gerði hann "Tequila Sunrise", misheppnaða glæpasögu með Mel Gibson, Kurt Russell og Michelle Pfeiffer. Hann fékk ekki að enda hana eins og hann vildi. "Vandamálið var að ef eitthvert vit átti að vera í myndinni þurftu annaðhvort Mel Gibson eða Pfeiffer að deyja. Það var alltaf málið. En kvikmyndaverið vildi ekki heyra á það minnst. Ég taldi mér trú um að ég gæti látið myndina virka samt en ég held ekki að það hafi tekist." Towne er spurður út í vinskap sinn við Nicholson sem varað hefur langa hríð. "Við vorum herbergisfélagar í Hollywood og sátum á botni fæðukeðjunnar," segir hann. "Fallegu stelpurnar í leiklistartímunum litu ekki við okkur. Við töluðum um drauma okkar og væntingar. Að því leyti hefur enginn staðið mér nær en Jack." Þeir stunduðu leiklistarnám saman í sjö ár og Towne sá í honum þann hæfileikamikla leikara sem Nicholson síðar varð. "Þú átt eftir að verða kvikmyndastjarna," sagði ég við hann og hann játti því. "Og ég á eftir að leikstýra þér." Hann átti reyndar eftir að hjálpa til við að gera Jack að stórstjörnu en vinunum sinnaðist síðar við gerð "The Two Jakes", framhaldsmynd Kínahverfisins. Towne vill ekki tala mikið um vinslitin en hefur ekkert nema gott eitt um leikarann að segja. Nokkuð svipað gerðist milli Towne og Warren Beattys. "Við urðum miklir vinir við gerð Bonnie og Clyde. Ég barðist fyrir handritinu þegar 50 leikstjórar höfnuðu því. Okkar samband var því meira tengt starfinu. Samband okkar Jacks var á persónulegra plani. En ég get sagt það almennt að í starfinu sem við stundum freistumst við til þess að blanda saman hinu persónulega við vinnuna og mörg streitan í samskiptum fólks er sprottin af því." Áhrifavaldar Aðspurður um hvaða myndir hefðu haft mestu áhrif á hann nefnir Towne Blekkinguna miklu eftir Renoir og Leikreglurnar, þrjár myndir Ingmar Bergmans, þar á meðal Sjöunda innsiglið ásamt tveimur myndum David Leans, Sívagó lækni og Arabíu Lárens. Þá er Kubrick greinilega í uppáhaldi, hann nefnir "Paths of Glory", "Dr. Strangelove" og 2001: A Space Odyssey. "Ein besta myndin sem nokkru sinni hefur verið gerð er Tvöfaldar skaðabætur ("Double Indemnity") þegar litið er til helberrar fagmennsku. Hún eldist betur en Sólsetursstræti ("Sunset Boulevard") þótt hún sé í miklu uppáhaldi einnig. Möltufálkinn er sannarlega í uppáhaldi hjá mér. Það hefur verið gerð ein mynd á síðustu fimm árum sem virkilega hefur hreyft við mér og það er "One False Move". Hún er í sérflokki. Það er ekki oft sem maður er búinn að sjá 60 prósent af bíómynd og hefur ekki hugmynd um hver er í aðalhlutverki. Það er kosturinn við bíómyndir sem ekki eru plagaðar af stórstjörnum." Þegar Towne er beðinn að ráðleggja mönnum hvað þeir ættu að kenna ungum handritshöfundum í dag segir hann: "Þeir handritshöfundar sem eru í mestu uppáhaldi hjá mér nýttu sér það sem þeir höfðu upplifað og starfað áður. Þeir unnu áður við eitthvað annað og kynntust samfélaginu sem þeir lifðu í. Það kemur fram í myndunum þeirra og gefur þeim ákveðna fyllingu sem kannski handritshöfundar í dag sem fara í kvikmyndanám og læra af gömlum myndum, gætu notað." HANDRITSHÖFUNDURINN Robert Towne. VIÐ upptökur á nýju myndinni, "Without Limits". FORNIR dýrðardagar; Nicholson í Kínahverfinu. LEIKSTJÓRARAUNIR; Gibson í "Tequila Sunrise".