VEFÞJÓÐVILJINN er kominn með nýja slóð á vefnum. Nýja slóðin er www.andriki.is Vef-Þjóðviljinn kemur út á hverjum degi á heimasíðu Andríkis. Þar eru fréttir og skoðanaskipti um stjórnmál og ýmis önnur þjóðmál. Vef-Þjóðviljinn hóf göngu sína 24. janúar 1997 og var fyrsta veftímaritið á Íslandi sem hóf daglega útgáfu, segir í fréttatilkynningu.
Vef-Þjóðviljinn með nýja slóð

VEFÞJÓÐVILJINN er kominn með nýja slóð á vefnum. Nýja slóðin er www.andriki.is

Vef-Þjóðviljinn kemur út á hverjum degi á heimasíðu Andríkis. Þar eru fréttir og skoðanaskipti um stjórnmál og ýmis önnur þjóðmál.

Vef-Þjóðviljinn hóf göngu sína 24. janúar 1997 og var fyrsta veftímaritið á Íslandi sem hóf daglega útgáfu, segir í fréttatilkynningu.

Andríki, útgefandi VÞ, er félag áhugafólks um stjórnmál. Félagið er óháð stjórnmálaflokkunum.