Dregið í verðlaunaleik DREGIÐ hefur verið í leiknum sem Morgunblaðið á Netinu stóð að ásamt Sambíóunum, Símanum Internet, Fm 95,7 og Hard Rock. Leikurinn var í tilefni sérstakrar forsýningar kvikmyndarinnar Geggjaður guðfaðir (Analyze This) fyrir gesti mbl.is. Leikurinn gekk út á að svara spurningum sem birtust á Netinu.
Dregið í verðlaunaleik

DREGIÐ hefur verið í leiknum sem Morgunblaðið á Netinu stóð að ásamt Sambíóunum, Símanum Internet, Fm 95,7 og Hard Rock. Leikurinn var í tilefni sérstakrar forsýningar kvikmyndarinnar Geggjaður guðfaðir (Analyze This) fyrir gesti mbl.is.

Leikurinn gekk út á að svara spurningum sem birtust á Netinu. Aðalvinningana, ársáskrift frá Símanum Internet ásamt miðum á myndina hlutu Kristín Guðmundsdóttir og María Gunnarsdóttir sem taka við vinningunum af Ásdísi Björk hjá Símanum Internet, (t.h) er kynningarstjóri Sambíóanna, Ísleifur B. Þórhallson. Meðal annarra vinninga voru miðar á myndina og kvöldverður fyrir tvo á Hard Rock.

Öllum vinningshöfum hefur verið sendur tölvupóstur og vilja aðstandendur leiksins óska þeim til hamingju.

Morgunblaðið/Þorkell