MJÖG ER nú deilt vestanhafs um sýningu á verkum ungra breskra listamanna úr Saatchi- safninu. Gengur svo langt að borgarstjóri New York-borgar hefur beitt sér fyrir því að af sýningunni verði fjarlægð verk sem ekki falla að almennum smekk. David Bowie tók fréttum af þessu illa og brást hart við með því að fá leyfi hjá listamönnunum til að setja sýninguna upp á Netinu.

Bowie

sýnir

umdeild

listaverk MJÖG ER nú deilt vestanhafs um sýningu á verkum ungra breskra listamanna úr Saatchi- safninu. Gengur svo langt að borgarstjóri New York-borgar hefur beitt sér fyrir því að af sýningunni verði fjarlægð verk sem ekki falla að almennum smekk. David Bowie tók fréttum af þessu illa og brást hart við með því að fá leyfi hjá listamönnunum til að setja sýninguna upp á Netinu. Á vef Bowies verður sýningin síðan sett upp í dag og engri ritskoðun beitt. Slóðin er www.davidbowie.com/.