Goran Kristófer Micic, þjálfari Stjörnunnar, hefur framlengt samning sinn við félagið til tveggja ára. Goran hefur þjálfað liðið undanfarin tvö ár og undir hans stjórn komst liðið í efstu deild í sumar. Pétur B.
Goran áfram með Stjörnuna Goran Kristófer Micic, þjálfari Stjörnunnar, hefur framlengt samning sinn við félagið til tveggja ára. Goran hefur þjálfað liðið undanfarin tvö ár og undir hans stjórn komst liðið í efstu deild í sumar.

Pétur B. Pétursson, formaður knattspyrnudeildar Stjörnunnar, sagði að þrír leikmenn liðsins yrðu að öllum líkindum ekki með því á næsta sumri; Hermann Arason, Reynir Björnsson og Helgi Björgvinsson. Hermann ætlar að leggja skóna á hilluna, Reynir fer til Noregs í framhaldsnám og Helgi er fluttur til Bandaríkjanna. Pétur sagði að næsta skref yrði að ræða við aðra leikmenn liðsins um endurnýjun samninga og ljóst að styrkja yrði liðið með aðkomumönnum.