VEITINGAMAÐURINN Jóhannes Stefánsson hjá Múlakaffi hefur staðið í ströngu undanfarið við undirbúning að veislu sem haldin er í tilefni af stofnun Slysavarnafélagsins Landsbjargar, sem varð til við sameiningu Slysavarnafélags Íslands og Landsbjargar. Búist er við um 2.


Stórveisla undirbúin í Höllinni Áskorun aldarinnar?

VEITINGAMAÐURINN Jóhannes Stefánsson hjá Múlakaffi hefur staðið í ströngu undanfarið við undirbúning að veislu sem haldin er í tilefni af stofnun Slysavarnafélagsins Landsbjargar, sem varð til við sameiningu Slysavarnafélags Íslands og Landsbjargar. Búist er við um 2.600 manns í borðhald sem hefst klukkan 19 en á eftir því verður slegið upp stórdansleik með Björgunarsveit allra landsmanna, Stuðmönnum.

"Þetta er stærsta veisla sem við hjá Múlakaffi höfum ráðist í og ég tel jafnframt að þetta sé stærsta matarveisla sem haldin hefur verið á Íslandi," sagði Jóhannes er blaðamaður kíkti í Laugardalshöllina í gær og kynnti sér gang mála. "Ég er vanur að sjá um stórar veislur en enga þó sem hefur verið af þessari stærðargráðu."

Guðjón Harðarson verður yfirkokkur veislunnar og að sögn Jóhannesar mun hann stjórna aðgerðum eins og herforingi. "Um fimmtán kokkar munu hjálpast að við að elda matinn og einhverjir tugir aðstoðarfólks munu auk þess verða þeim innan handar," sagði Jóhannes.

Veislugestir munu fá að gæða sér á heitri sjávarréttafantasíu í forrétt, lambasteik með öllu tilheyrandi í aðalrétt og í eftirétt verður sælkeraterta hússins. "Kokkarnir voru að skjóta á að fjórtán til fimmtán hundruð lömb þurfi til að metta alla þessa munna," segir Jóhannes og brosir. "Það verða fleiri tonn af mat sem við afgreiðum í kvöld."

Allur matur verður eldaður í Höllinni og í þeim tilgangi hefur verið sett þar upp eldhús. Undirbúningur hefur staðið yfir í nokkra mánuði enda að mörgu að huga og nefndi Jóhannes í því sambandi að útvega hefði þurft mikið magn leirtaus, t.d. um sjö þúsund diska. "Þetta er allt í mjög stórum tölum," segir hann og hlær.

Allir með sitt hlutverk á hreinu

Það er púsluspil að halda veislu og mikilvægt að allir sem að henni standa leggist á eitt. "Aðalatriðið sem hafa ber í huga við undirbúning veislu sem þessarar er skipulagning," segir Jóhannes. "Það er nauðsynlegt að allir sem að koma vinni heimavinnuna sína nokkrum vikum fyrirfram svo að þeir viti nákvæmlega hvert hlutverk þeirra er þegar að veislunni kemur."

Jóhannes segir það töluverða áskorun fyrir hann sem matreiðslumann og hans veisluþjónustu að takast á við svona viðamikið verkefni. "Ég tjalda öllu til svo að veislan verði sem best úr garði gerð, það er minn heiður í veði," segir Jóhannes að lokum og tekur til við að ganga úr skugga um að allt sé á réttum stað og tilbúið fyrir kvöldið.

Morgunblaðið/Halldór Jóhannes (fyrir miðju) ásamt hjálparkokkum við undirbúning stórveislunnar í Laugardalshöllinni í gær.

Hátíðardagskrá í Laugardalshöll

í kvöld:



Hátíðarstjóri Sigmundur Ernir Rúnarsson.





Klukkan 13.20-14.00:

Brazzbandið kvintett spilar fyrir gesti.





Klukkan 14.00-16.45:

Ólafur Proppé formaður og Gunnar Tómasson varaformaður flytja ávörp við setningu hátíðarfundarins.





Ávörp:

Forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson.

Utanríkisráðherra, Halldór Ásgrímsson.

Biskup Íslands, séra Karl Sigurbjörnsson.

Erlendir gestir.





Skemmtiatriði:

Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur einsöng.

Karlakórinn Fóstbræður flytur tvö lög.

Kórinn og Diddú syngja að lokum eitt lag.

KK og Magnús Eiríksson blúsa.

Gunnar Eyjólfsson leikari les ljóð.

Kaffiveitingar.





Sameining:

Fulltrúar allra björgunarsveita og slysavarnadeilda taka á móti fána samtakanna á táknrænan hátt.

Klukkan 16.50:

Ólafur Proppé slítur hátíðarfundinum.





Samfagnaður í

Laugardalshöll.



Húsið opnað kl. 19.00.

Borðhald og hátíðarræða í léttum dúr.

Samsöngur.



Klukkan 22.00- 22.30:

Plötusnúðarnir Sérfræðingarnir hita upp.



Klukkan 22.30:

Hljómsveitin Stuðmenn spilar.



Klukkan 00.00-Úlfur Eldjárn skemmtir gestum.

Hljómsveitin Stuðmenn spilar.



Klukkan 2.00:

Samfagnaði lýkur.