Niðursoðin tíska FÁTT er skemmtilegra en tilbreytingin; þegar einhver hefur fyrir því að ganga gegn viðteknum venjum. Hönnuðurinn líflegi Gattinoni er í þeim hópi eins og glöggt mátti sjá á sýningu hans á tískuvikunni í Mílanó.
Niðursoðin tíska

FÁTT er skemmtilegra en tilbreytingin; þegar einhver hefur fyrir því að ganga gegn viðteknum venjum. Hönnuðurinn líflegi Gattinoni er í þeim hópi eins og glöggt mátti sjá á sýningu hans á tískuvikunni í Mílanó. Ímyndunaraflið fékk að leika lausum hala og fann hann oft bráðsnjallar lausnir í hversdagslegri tilveru sem markast m.a. af barneignum og dósamat.

Breska fyrirsætan Sophie Dahl í toppi með mynstrinu af niðursuðudósum Campbells.

Hvít náttföt og bangsi í stíl.

Fyrirsæta í gegnsæju lífstykki.

Leikkonan Elisabetta Cavallotti stormar fram á sýningarpallinn.

Fyrirsæta hjúfrar að sér Stefano, sem er tveggja mánaða.