BIFREIÐ valt á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Listabrautar í gærmorgun um klukkan átta eftir árekstur þriggja bifreiða. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík voru allir í bifreiðunum í bílbeltum og urðu engin slys á fólki. Tvær bifreiðanna skemmdust hins vegar nokkuð og þurfti að draga þær á brott með kranabifreið, þar á meðal bifreiðina sem valt.
Bílvelta í
morgunumferðinniBIFREIÐ valt á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Listabrautar í gærmorgun um klukkan átta eftir árekstur þriggja bifreiða. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík voru allir í bifreiðunum í bílbeltum og urðu engin slys á fólki. Tvær bifreiðanna skemmdust hins vegar nokkuð og þurfti að draga þær á brott með kranabifreið, þar á meðal bifreiðina sem valt.
Talsverðar tafir urðu á umferð um Kringlumýrarbrautina úr suðurátt meðan lögregla athafnaði sig á vettvangi og var umferð því beint inn á Bústaðabrú.
Morgunblaðið/Júlíus