Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn. Rennur sól á bak við Arnarfell. Hér á reiki er margur óhreinn andinn, úr því fer að skyggja á jökulsvell. Drottinn leiði drösulinn minn. Drjúgur verður síðasti áfanginn. Þei, þei, þei, þei, þaut í holti tófa, þurran vill hún blóði væta góm, eða líka einhver var að hóa undarlega digrum karlaróm.
Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn.

Rennur sól á bak við Arnarfell.

Hér á reiki er margur óhreinn andinn,

úr því fer að skyggja á jökulsvell.

Drottinn leiði drösulinn minn.

Drjúgur verður síðasti áfanginn.



Þei, þei, þei, þei, þaut í holti tófa,

þurran vill hún blóði væta góm,

eða líka einhver var að hóa

undarlega digrum karlaróm.

Útilegumenn í Ódáðahraun

eru kannske' að smala fé á laun.



Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn.

Rökkrið er að síga' á Herðubreið.

Álfadrottning er að beizla gandinn.

Ekki' er gott að verða' á hennar leið.

Vænsta klárinn vildi' eg gefa til

að vera kominn ofan í Kiðagil.

Grímur Thomsen.