EKKI færri en 22 létu lífið vegna jarðskjálftans sem reið yfir Mexíkó á fimmtudag, flestir í héraðinu Oaxaca, skammt frá upptökum sjálftans undan Kyrrahafsströndinni. Í gær var hlúð að særðum og reynt að lagfæra skemmdir, sem þykja ótrúlega litlar miðað við hve öflugur skjálftinn var.
AÐ minnsta kosti 22 létust í Mexíkó

Oaxaca. AP, Reuters.

EKKI færri en 22 létu lífið vegna jarðskjálftans sem reið yfir Mexíkó á fimmtudag, flestir í héraðinu Oaxaca, skammt frá upptökum sjálftans undan Kyrrahafsströndinni. Í gær var hlúð að særðum og reynt að lagfæra skemmdir, sem þykja ótrúlega litlar miðað við hve öflugur skjálftinn var.

Nokkrir eftirskjálftar mældust í Mexíkó í fyrrakvöld og í gær, en enginn sterkari en 4,5 stig á Richters-kvarða. Í jarðskjálftanum á fimmtudag, sem mældist 7,5 stig, titruðu hús, þök hrundu, vegir skemmdust og rafmagni sló víða út. Sérfræðingar segja að til allrar hamingju hafi skjálftinn verið öflugastur á mjög strjálbýlu svæði, svo manntjón og skemmdir urðu mun minni en hefði orðið í þéttbýli. Ernesto Zedillo, forseti Mexíkós, skoðaði í gær svæðin sem verst urðu úti.

Í héraðinu Oaxaca létust að minnsta kosti tuttugu manns, en flestir þeirra urðu undir húsum sem hrundu. Um tuttugu manns voru lagðir inn á sjúkrahús með meiðsli. "Fæstir íbúar Oaxaca gátu fest svefn í nótt, vegna þess að við vorum taugaóstyrk og óttuðumst að annar jarðskjálfti riði yfir," sagði Alberto Rodriguez, héraðsstjóri í Oaxaca, í gær. Skólar í héraðinu voru lokaðir í gær, svo unnt væri að kanna hvort byggingarnar hefðu laskast í skjálftanum.

Öflugasti skjálftinn síðan 1985

Einn maður lést í Mexíkóborg, sem er um 500 km frá upptökunum, en hann fékk hjartaáfall í kjölfar skjálftans. Kona lét lífið í héraðinu Veracruz við Mexíkóflóa, en hún hrasaði við titringinn og höfuðkúpubrotnaði.

Talið er að þetta sé öflugasti jarðskjálfti sem riðið hefur yfir Mexíkó síðan 1985, en þá létu allt að 10 þúsund manns lífð í tveimur hrinum sem mældust 8,1 og 7,3 stig á Richters-kvarða. Jarðskjálftar eru algengir í Mexíkó og er Mexíkóborg á sérstöku hættusvæði.

AP

Veggur hrundi á bílastæði í Mexíkóborg í jarðskjálftanum á fimmtudag.