Leiðrétt
Vitlaust leikaranafn
UMFJÖLLUN í blaðinu um leikritið Glanni glæpur í Latabæ var
Valdís Gunnarsdóttir sögð Vigdís heita Vigdís. Beðist er velvirðingar á mistökunum.
Engin list við Geysi um helgina
RANGLEGA var fullyrt á baksíðu Morgunblaðsins í gær að bandaríski myndlistarmaðurinn Robert Dell myndi sýna listaverk sitt við Geysi í Haukadal um helgina. Listaverkið var tekið niður strax á fimmtudag og er því ekki lengur sýnilegt almenningi.
Nöfin með stórum staf
Í minningargrein Jóhönnu D. Skaftadóttur um Ástríði Sigurrós Guðmundsdóttur á blaðsíðu 47 í Morgunblaðinu fimmtudaginn 30. september var óvart lítill stafur í sérnafninu Nöfin. Málsgreinin hljóðar svo: "Nú er stóra húsið við Gránugötuna horfið sem og Nöfin sem undirrituð ólst upp í." Hlutaðeigendur eru beðnir afsökunar á þessum mistökum.
Villur í ljóði
Í minningargrein í Morgunblaðinu 25. september um Elísabetu Öldu Kristjánsdóttur, skrifuð af Kvennakór Bolungarvíkur, eru villur í fyrsta og síðasta erindi ljóðs eftir Bryndísi Jónsdóttur. Um leið og við birtum þessi erindi aftur biðjum við hlutaðeigendur velvirðingar á þessum mistökum:
Við andlátsfregn þína,
allt stöðvaðist í tímans ranni.
Og sorgin mig grípur,
en segja ég vil með sanni,
að ósk mín um bata þinn,
tjáð var í bænunum mínum,
en Guð vildi fá þig,
og hafa með englunum sínum.
Þótt farin þú sért,
og horfin ert burt þessum heimi.
Ég minningu þína,
þá ávallt í hjarta mér geymi.
Ástvini þína, ég bið síðan
Guð minn að styðja,
og þerra burt tárin,
ég ætíð skal fyrir þeim biðja.
Rangt föðurnafn
Rangt var farið með föðurnafn í grein Gunnars G. Bjartmarssonar í Bréfum til blaðsins í gær. Þar stóð Hrafn Höskuldsson en átti að standa Hrafn Jökulsson. Morgunblaðið biðst velvirðingar á mistökunum.