BIFHJÓLI var ekið á gangandi vegfaranda á Kringlumýrarbraut við Suðurver um miðjan dag í gær. Var vegfarandinn, sextán ára stúlka, flutt á slysadeild með mar á höfði og mjöðm. Nokkur fjöldi árekstra milli bifreiða varð í umdæmi lögreglunnar í Reykjavík í gær, en frá því snemma í gærmorgun fram til kvölds var tilkynnt um 18 árekstra.
Bifhjóli ekið á stúlku

BIFHJÓLI var ekið á gangandi vegfaranda á Kringlumýrarbraut við Suðurver um miðjan dag í gær. Var vegfarandinn, sextán ára stúlka, flutt á slysadeild með mar á höfði og mjöðm.

Nokkur fjöldi árekstra milli bifreiða varð í umdæmi lögreglunnar í Reykjavík í gær, en frá því snemma í gærmorgun fram til kvölds var tilkynnt um 18 árekstra. Minniháttar meiðsl urðu á fólki í þeim en tjón varð á ökutækjum í nokkrum tilvikum.

Morgunblaðið/Halldór