ROBBIE Fowler leikur ekki með Liverpool næstu tvo mánuði eftir að læknar sögðu að hann yrði að fara tafarlaust í uppskurð vegna endurtekinna meiðsla í ökkla.
ROBBIE Fowler leiku STOFNANDI:: IVBE \: \:



ROBBIE Fowler leikur ekki með Liverpool næstu tvo mánuði eftir að læknar sögðu að hann yrði að fara tafarlaust í uppskurð vegna endurtekinna meiðsla í ökkla.

BOBBY Robson knattspyrnustjóri Newcastle hefur keypt skoska framherjann Kevin Gallacher frá Blackburn fyrir tæpar 60 milljónir króna. Þar með vonast Robson til að hafa fengið leikmann til þess að hlaupa í skarðið fyrir Duncan Ferguson og Temuri Ketsbaia sem báðir eru á sjúkralista.

REIKNAÐ er fastlega með því að Gallacher leiki í fyrsta sinn með sína nýja félagi gegn Middlesbrough á morgun, sunnudag.

CESAR Sanchez markvörður Valladolid var valinn í fyrsta sinn í landsliðshóp Spánverja sem tilkynntur var á föstudaginn og mætir Ísrael eftir viku. Sanchez kemur í stað Santiago Canizarres, markvarðar Valencia, sem er frá keppni vegna meiðsla.

FRANZ Beckenbauer, forseti Bayern M¨unchen og varaformaður þýska knattspyrnusambandsins, segir að fái Þjóðverjar ekki HM 2006, líti hann á það sem persónulegan ósigur sinn. "Það yrði mér persónulegt áfall," segir hann og ítrekar enn að hann telji Þjóðverja örugga um að fá keppnina.

KRÓATÍSKI miðvallarleikmaðurinn, Jurica Vranjes, segir að Arsenal hafi gert tæplega 800 milljóna króna tilboð í sig, en hann leikur nú með Osijek í heimalandi sínu.