JEPPABIFREIÐ valt á Ölfusárbrú um klukkan 19 í gær, en í bílnum var kona og ungt barn hennar. Ekki er talið að alvarleg meiðsl hafi orðið á mæðgunum, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi.
Hvolfdi á Ölfusárbrú

JEPPABIFREIÐ valt á Ölfusárbrú um klukkan 19 í gær, en í bílnum var kona og ungt barn hennar. Ekki er talið að alvarleg meiðsl hafi orðið á mæðgunum, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi.

Bifreiðin var á austurleið þegar hún virðist hafa rekist í brúarhandriðið með þeim afleiðingum að hún snerist við og fór á hvolf. Ökumaðurinn, kona, og ungabarn í bílstól, urðu ekki fyrir alvarlegum meiðslum, en þær voru fluttar á heilsugæslustöðina á Selfossi til rannsóknar. Loka þurfti brúnni um skamma hríð vegna óhappsins, en hægt var þó að hleypa umferð framhjá. Nokkrar tafir urðu því á umferð, en ekki miklar að sögn lögreglu.