Engin fuglafælni "ÞAÐ vilja allir heyra mig segja að ég þoli ekki fugla, alveg eins og ætlast er til að Janet Leigh játi að hún geti ekki hugsað sér að fara í sturtu," segir Tippi Hedren í nýlegu viðtali. Hún fór með aðalhlutverk í Fuglum hrollvekjumeistarans Alfreds Hitchcocks.
Engin

fuglafælni

"ÞAÐ vilja allir heyra mig segja að ég þoli ekki fugla, alveg eins og ætlast er til að Janet Leigh játi að hún geti ekki hugsað sér að fara í sturtu," segir Tippi Hedren í nýlegu viðtali. Hún fór með aðalhlutverk í Fuglum hrollvekjumeistarans Alfreds Hitchcocks. Hér sést hún við á kvikmyndahátíðinni í San Sebastian nýverið þar sem hún tók þátt í sérstakri dagskrá til heiðurs Alfred Hitchcock á aldarafmæli hans. Hedren, sem er móðir leikkonunnar Melanie Griffith, lék í kvikmyndinni Fuglunum árið 1963.