FÉLAGSMIÐSTÖÐ Geðhjálpar verður opin um jól og áramót og verður boðið upp á mat alla hátíðisdagana. Máltíðin kostar 300 krónur og eru þeir sem ætla að koma í mat beðnir um að láta Geðhjálp vita í síma 570 1700. Opið verður á þessum tíma: 24.

FÉLAGSMIÐSTÖÐ Geðhjálpar verður opin um jól og áramót og verður boðið upp á mat alla hátíðisdagana. Máltíðin kostar 300 krónur og eru þeir sem ætla að koma í mat beðnir um að láta Geðhjálp vita í síma 570 1700.

Opið verður á þessum tíma: 24. desember, aðfangadagur, opnað kl. 16, matur kl. 17. 25. desember, jóladagur, opnað kl. 14, matur kl. 15. 26. desember, annar í jólum, opnað kl. 14, matur kl. 15. 31. desember, gamlársdagur, opnað kl. 16m matur kl. 17 og 1. jan. 2000 (nýársd.) opnað kl. 14, matur kl. 15.