HAFIN er smíði nýrrar brúar yfir Grímsá við Fossatún. Er hún hluti af fyrirhuguðum vegaframkvæmdum þar sem leggja á nýjan veg frá Andakílsá að Hnakkatjarnarlæk. Í haust var lokið við að leggja slitlag á veginn frá Hnakkatjarnarlæk að Kleppjárnsreykjum.
HAFIN er smíði nýrrar brúar yfir Grímsá við Fossatún. Er hún hluti af fyrirhuguðum vegaframkvæmdum þar sem leggja á nýjan veg frá Andakílsá að Hnakkatjarnarlæk. Í haust var lokið við að leggja slitlag á veginn frá Hnakkatjarnarlæk að Kleppjárnsreykjum. Þegar þessari vegalagningu verður lokið er komið bundið slitlag á veginn frá Seleyri að Haugum.