AÐALHEIÐUR S. Eysteinsdóttir opnar myndlistarsýningu í Bókasafni Háskólans á Akureyri föstudaginn 10. desember frá kl. 16-18. Sýningin ber yfirskriftina Gluggar.

AÐALHEIÐUR S. Eysteinsdóttir opnar myndlistarsýningu í Bókasafni Háskólans á Akureyri föstudaginn 10. desember frá kl. 16-18. Sýningin ber yfirskriftina Gluggar.

Aðalheiður hefur vinnustofu í Kaupvangsstræti á Akureyri og rekur þar einnig Ljósmyndakompuna. Hún stundaði nám við Myndlistarskólann á Akureyri og var nýlega úthlutað starfslaunum bæjarlistamanns á Akureyri. Aðalheiður hefur haldið sýningar hér heima og erlendis, síðast í Amsterdam. Sýning Aðalheiðar verður opin fram til 8. janúar árið 2000.