ÁRNESINGAKÓRINN í Reykjavík heldur tónleika í safnaðarheimili Bústaðakirkju á sunnudaginn klukkan 16. Á tónleikunum flytur kórinn jólalög og einnig verða flutt lög af nýútkominni geislaplötu kórsins, Náttmál, sem kom út nú í haust.

ÁRNESINGAKÓRINN í Reykjavík heldur tónleika í safnaðarheimili Bústaðakirkju á sunnudaginn klukkan 16.

Á tónleikunum flytur kórinn jólalög og einnig verða flutt lög af nýútkominni geislaplötu kórsins, Náttmál, sem kom út nú í haust.

Stjórnandi Árnesingakórsins í Reykjavík er Sigurður Bragason barítónsöngvari.