Blönduósi- Garðbæingurinn Svava Axelsdóttir opnaði sína fyrstu myndlistarsýningu í veitingahúsinu Við árbakkann fyrir skömmu. Myndefnið sækir Svava allt í kringum sig og segir hún að myndirnar fjalli um allt milli himins og jarðar.
Blönduósi- Garðbæingurinn Svava Axelsdóttir opnaði sína fyrstu myndlistarsýningu í veitingahúsinu Við árbakkann fyrir skömmu.

Myndefnið sækir Svava allt í kringum sig og segir hún að myndirnar fjalli um allt milli himins og jarðar. Myndirnar sem eru á fjórða tug eru ýmist akrýl-, olíu- eða vatnslitamyndir.

Sýning Svövu lýkur 4. janúar árið 2000.