Í REYKLAUSA kaffihúsinu Nönnukoti í Hafnarfirði verður haldin jólakvöldvaka föstudagskvöldið 10. desember kl. 20-22.

Í REYKLAUSA kaffihúsinu Nönnukoti í Hafnarfirði verður haldin jólakvöldvaka föstudagskvöldið 10. desember kl. 20-22.

Á milli þess sem gestir sötra af kanilkaffi eða heitu súkkulaði verður boðið upp á óformlega dagskrá, þjóðlegan fróðleik, söng og þessháttar, segir í fréttatilkynningu.

Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.