Bubbi víkur úr efsta sæti Safnlistans eftir að hafa einokað efsta sætið um margra vikna skeið, en allt bendir til að plata hans nái gullsölu í dag. Jólastemmningin ræður ríkjum á listanum, en helmingur platnanna á listanum eru jólaplötur.
Bubbi víkur úr efsta sæti Safnlistans eftir að hafa einokað efsta sætið um margra vikna skeið, en allt bendir til að plata hans nái gullsölu í dag. Jólastemmningin ræður ríkjum á listanum, en helmingur platnanna á listanum eru jólaplötur. Það er sjálf Jólaplatan sem kemur ný inn á listann og veltir kónginum Bubba úr sessi. Bestu jólalög Björgvins Halldórssonar eru komin í 3. sæti listans og Bestu lögin hans Vilhjálms Vilhjálmssonar eru í 4. sæti. Vísnaplatan Út um græna grundu er löngu orðin sígild, enda skýst hún enn einu sinni inn á listann og fer í 8. sætið.