NÚ er vetrartíð enda ýlir hálfnaður samkvæmt fornu tímatali. Kalt er í veðri og víða þekja snjókornin jörð. Sums staðar má þó tylla tá á upphitaðar gangstéttir en slík nútímaþægindi varna þó ekki Frosta gamla að bíta í kinnarnar.
NÚ er vetrartíð enda ýlir hálfnaður samkvæmt fornu tímatali. Kalt er í veðri og víða þekja snjókornin jörð. Sums staðar má þó tylla tá á upphitaðar gangstéttir en slík nútímaþægindi varna þó ekki Frosta gamla að bíta í kinnarnar. Ef vegfarendur eru vel búnir og njóti öryggis endurskinsmerkjanna og ekki síst handleiðslu hinna eldri má njóta nærveru Frosta með ánægju eins og svipur barnanna á Ingólfstorgi ber með sér.