Hafnarborg FJÓRUM sýningum í Hafnarborg lýkur á sunnudag.

Hafnarborg

FJÓRUM sýningum í Hafnarborg lýkur á sunnudag. Það eru sýningarnar: Lífríki lands og sjávar - myndir Jóns Baldurs Hlíðberg úr náttúru Íslands; Allt í einu við Kleifarvatn, ljósmyndasýning Lárusar Karls Ingasonar; Kínversk skrautritun og myndlist Tan Baoquan og Wu Zhanliang; "Kvenfólk og hreinar meyjar í San Blas, Mexíkó", ljósmyndasýning Hrannar Axelsdóttur.

Hafnarborg er opin alla daga nema þriðjudaga frá kl. 12-18.