GJÖRNINGAKLÚBBURINN/The Icelandic Love Corporation opnar myndlistarsýningu í Galleríi OneOOne, Laugavegi 48b, á morgun, laugardag, kl. 17. Í fréttatilkynningu segir að á sýningunni sé blanda af ísköldum veruleika, viðbjóðslegum hugsunum og fegurð.

GJÖRNINGAKLÚBBURINN/The Icelandic Love Corporation opnar myndlistarsýningu í Galleríi OneOOne, Laugavegi 48b, á morgun, laugardag, kl. 17.

Í fréttatilkynningu segir að á sýningunni sé blanda af ísköldum veruleika, viðbjóðslegum hugsunum og fegurð. Gjörningaklúbburinn er í viðbragðsstöðu gegn hinu vonda tilbúinn til þess að veita áfallahjálp og minnast upphafsins klukkan 17:30 í gjörningi á opnunardaginn.

Í Gjörningaklúbbnum eru: Dóra Ísleifsdóttir, Eirún Sigurðardóttir, Jóní Jónsdóttir og Sigrún Hrólfsdóttir. Þær útskrifuðust allar úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1996 og hafa stundað framhaldsnám erlendis.