Í GALLERÍ- Geysir, Hinu húsinu v/Ingólfstorg opnar Liis Theresia Ulman ung myndlistarkona frá Tallin-sýningu á olíupastel-myndum á morgun, laugardag kl. 16. Liis Theresia kemur frá Eistlandi og hefur stundað myndlistarnám í Tallin. Liis Theresia.

Í GALLERÍ- Geysir, Hinu húsinu v/Ingólfstorg opnar Liis Theresia Ulman ung myndlistarkona frá Tallin-sýningu á olíupastel-myndum á morgun, laugardag kl. 16.

Liis Theresia kemur frá Eistlandi og hefur stundað myndlistarnám í Tallin. Liis Theresia. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum í heimalandi sínu.

Í fréttatilkynningu segir að í verkum sínum reyni hún að benda okkur á það grátbroslega í tilveru okkar.

Sýningin er opin alla daga frá kl: 9-17 og lýkur 26. desember. Listakonan verður viðstödd opnunina.