LEIKARINN Rowan Atkinson sem flestir þekkja sem Mr. Bean er að byggja sína eigin árþúsundahvelfingu líkt og þá sem verið er að byggja í London um þessar mundir.
LEIKARINN Rowan Atkinson sem flestir þekkja sem Mr. Bean er að byggja sína eigin árþúsundahvelfingu líkt og þá sem verið er að byggja í London um þessar mundir. Verið er að byggja hvelfingu leikarans, sem er lítil en nákvæm eftirmynd af hinni upprunalegu árþúsundahvelfingu, í bakgarði hans. Hún mun kosta tæpar sex milljónir króna og er reist við heimili hans í Oxfordshire þar sem hann mun halda veglega árþúsundaveislu fyrir vini og vandamenn.

Nágrannar leikarans eru að sögn slúðurblaðsins Sun ekki ánægðir með uppátækið og eru vægast sagt orðnir þreyttir á umferð vörubíla um hverfið. "Ég er brjálaður," sagði einn nágranninn sem eflaust verður ekki boðið í veisluna úr þessu.