SNÆUGLUR eru tiltölulega sjaldgæfir fuglar hér á landi og því þykja áhugamönnum það nokkur tíðindi þegar hennar verður vart, hvað þá þegar hún er fest á filmu.
SNÆUGLUR eru tiltölulega sjaldgæfir fuglar hér á landi og því þykja áhugamönnum það nokkur tíðindi þegar hennar verður vart, hvað þá þegar hún er fest á filmu. Birgir Þórbjarnarson, starfsmaður Fiskistofu, rakst á snæuglu á ferð sinni um Hólsfjöll í sumar, nánar tiltekið á milli bæjannaNýhóls og Grímsstaða, og mundaði myndavélina þegar fuglinn flaug hjá.