Alls seldust 3.775 Ferrari- bílar síðasta ár.
Alls seldust 3.775 Ferrari- bílar síðasta ár.
3.755 Ferrari bílar seldust í fyrra sem er 4% söluaukning frá 1998. 360 Modena, sem nýlega kom á markað, var langsöluhæstur, alls seldust 1.418 slíkir bílar en 1.249 F335 GTB og Spider. Þá seldust 1.108 550 Maranello og 456M með V12 vélum.
3.755 Ferrari bílar seldust í fyrra sem er 4% söluaukning frá 1998. 360 Modena, sem nýlega kom á markað, var langsöluhæstur, alls seldust 1.418 slíkir bílar en 1.249 F335 GTB og Spider. Þá seldust 1.108 550 Maranello og 456M með V12 vélum. Í Bandaríkjunum, sem er stærsti markaðurinn fyrir Ferrari, seldust 1.003 bílar sem er 20% söluaukning frá 1998. Í Þýskalandi seldust 620 bílar, 453 í Bretlandi, 374 á Ítalíu, 236 í Japan og 219 í Sviss.